![]()
Horfði á bíómynd um daginn. Við gerum nú ekkert voðalega mikið af því að horfa á myndir þessa dagana þar sem okkur finnst ekki vera mikið um góðar myndir í gangi. Mér sjálfum finnst reyndar meira vera um góðar myndir enda kvikmyndasmekkur okkar frekar ólíkur. En við ákváðum að gefa Alfa dog séns vegna þess arna að við höfðum ekki heyrt neitt nema gott um hana. Ég skal viðurkenna að ég var ekki spenntur að horfa á mynd þar sem Jöstin Timberleik fer með aðalhlutverkið enda maðurinn að mínu mati hinn illi holdi klæddur. En sú skoðun hefur breyst. Myndin var frábær og hann kom mér sérstaklega á óvart. Hann leikur reyndar tattúveraðan dópdíler þannig að 13 ára röddin hljómar frekar kjánalega í fyrstu. En hún venst. Og hann venst. Og myndin er frábær. Sannsöguleg og allt og skilur helling eftir sig. Allavega er langt síðan ég hef horft á mynd sem ég ekki gleymi um hvað var svona 10 mínútum eftir að henni lauk.
Ég mæli svo sannarlega með myndinni en auk Jöstins fara margir fínir leikarar með hlutverk og einnig bregður fyrir einni flottustu persónu sem ég hef séð síðan persónan Rokkó í Ðe Búndokk seints átti hug minn allan.
Uncategorized |
olibj skrifaði 