Finale

miðvikudagur, 23 maí, 2007

Tími til kominn að gera grein fyrir stöðu og líðan.

Ég er hress.
Við erum semsagt nýbúin að ganga frá kaupum á nýju húsi, nánar tiltekið Borgarlandi 34. Kannski betur þekkt sem Snjólfshús. Heitir reyndar Espilundur sem mér finnst nú frekar samkynhneigt en það er víst ekkert hlaupið að því að breyta nöfnum á húsum. Ef allt væri rétt héti þetta hús Ólafsstaðir eða Ólafslundur.
Þetta er hið fínasta hús með baði, vaski og sólpalli.
Inga er byrjuð að reyta garðinn upp. Hefur í hyggju að gera hann allan hinn glæsilegastan. Ég skal alveg viðurkenna það að allt sem við kemur svona görðum er ekki mín sterkasta hlið. Ætli maður verði nú samt ekki að sýna einhvern lit og stinga upp eina tuttugu metra svo frúin geti komið fyrir aragrúa af trjám. Sé til hvort ég sé maður í það á morgun.

En ég hef ákveðið að láta undan og gerast aftur bloggvændiskona. Það er að segja að skipta aftur um blogg.
olafurbj.blog.is verður það í þetta skiptið og nú lofa ég að láta það gott heita. Þangað til annað lemur í kjós.

Að handan og framundan eru gríðarlegar æfingar fyrir hammondhátíð mikla sem haldin verður hér á Djúpavogi dagana 31. maí til 3. júní. Við stórmennin í hljómsveitinni Dallas ásamt skemmtaraleikaranum Svavari Sigurðssyni spilum á fyrsta kvöldi og ætlum að gera alla heyrnarlausa með léttleikandi lögum úr smiðju Pink Floyd, Deep Purple og Uriah Heep. Lofa rokki og gleði.
Föstudags og laugardagskvöldin eru svo þéttskipuð hverju stórnafninu á fætur öðru.
Blúsbrot Garðars Harðars og Mæðusveitin Sigurbjörn spila á föstudagskvöldinu og svo mun Landsliðið sjá um uppistand á stórtónleikum í Íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Ber þar helst að nefna Jón Ólafsson, Andreu Gylfa, Dóra Braga, Ásgeir Óskars og Eðvald Lárusson. Það verður ekkert leiðinlegt. Nánar um það á http://www.djupivogur.is/hammond/

Jæja, þá þakkar þessi vefur fyrir sig í bili og lifi nýja síðan.
olafurbj.blog.is

Bæs


xhvad.bifrost.is

þriðjudagur, 8 maí, 2007

Ég tók semsagt prófið sem allir eru að tala um og má segja að ég hafi staðist það með miklum sóma.

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 50%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 80%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 31.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 19%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

 

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Framsóknarflokksins!

Og þar hafiði það


Hugleiðingar

föstudagur, 4 maí, 2007

Ég er mikið að spá í þessum bloggkerfum. WordPress er mjög fínt, aðgengilegt og meðfærilegt á flesta vegu. En ég er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af blog.is kerfi Mbl.is. Enginn maður með mönnum nema hann bloggi þar. Eins jókst hrfining mín á því kerfi í gær þegar ég komst að því að það er frítt en ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að það kosti að vera með aðgang. Enda lætur Mbl.is borga fyrir allt. En svo er nú ekki með kerfið.

Því eru vangavelturnar miklar hvort ég eigi (eftir að hafa skipt nýlega úr 6 ára gömlu bloggi yfir í nýtt) að gerast svona “blogggleðikona” og skipta aftur um kerfi. Svoldið leim en gæti haft ýmsa kost í för með sér.
Eina sem ég sé athugavert við blog.is er það að það eru það margir notendur að kerfið virðist illa ráða við allan þennan fjölda og síður virðast dáldið seinar að hlaðast inn en það er vonandi verið að vinna í því.
Það heillar mig mjög við blog.is að þú getur bloggað beint um fréttir sem þú lest á mbl.is sem kemur sér vel fyrir svona frétta- og pólitíkurnörd eins og mig. Svo vekja þessi blogg einfaldlega meiri athygli en önnur og er það einnig jákvætt þar sem ég reyni sem minnst að skrifa um hvað ég fékk mér í hádegismat eins og flestir bloggarar hafa sem aðalmál.

Ég er nú samt ekki búinn að gera upp hug minn enda með valkvíða á háu stigi og illa við að breyta til.  En ég mæli með að bloggnördar sem hafa gaman að því að skoða eitthvað annað en hvað frændfólk þeirra fékk sér marga bjóra í gær kíki á www.blog.is


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.