Eitt og annað

 - Klukkan er 02:52

- Ef þið viljið sjá Jónínu Bjartmarz taka Helga Seljan, Reyðfirðinginn knáa og gjörsamlega pakka honum saman og láta hann líta út eins og skólastrák þá mæli og með því að þið smellið á linkinn hér fyrir neðan, spólið yfir Ómar Ragnarsson og njótið.

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301790

- Oft er talað um að trommuleikarar slái takt við hin ýmsu tækifæri, samanber þegar ég stóð við hliðina á Danna trommuleikaranum í Maus í Ísbúðinni í Vesturbæ og hann fór að tromma í takt við ísvélina. En ég hef tekið eftir því að þegar ég borða kex þá tygg ég það alltaf í einhverjum takti. Mæli með að þið prófið það.

- Eftir því sem ég best veit þá er Björgólfur Thor að borga 1.1 milljón á mánuði í hússjóð í nýju fínu íbúðinni sinni í New York. Það er ekki neitt.

- Liverpool tapaði í dag. Sem er gott.

- Það er þess virði að athuga Skype gaumgæfilega. Sniðugt forrit

- Ég hef aldrei dregið dul á það að mér er illa við Guðrúnu Gunnarsdóttur. Hef farið illum orðum um hana og aldrei dregið neitt af. Hér með dreg ég það allt til baka. Hún er fín.

- Þar sem þið eruð ábyggilega ennþá að skoða Kastljósklippuna sem ég vísaði á fyrr í blogginu þá eruð þið sjálfsagt löngu búin að gleyma því að þið voruð að lesa þetta blogg. Því segi ég þetta gott í bili.

Stóðar gundir

6 Responses to Eitt og annað

  1. Ingþór says:

    Ef að þú fílar skype ættir þú að prufa voipbuster, það er svipað og skype bara aðeins betra, frítt að hringja í landlínu. Semsagt hringi ég allt frítt til Íslands.
    Ætla að fara að horfa á kastljós.

  2. ég nennti ekki að horfa á þetta kastljós..

  3. Ægir says:

    Óli ef þú ætlar að fara fíla Guðrúnu Gunnars þá tala ég ekki við þig oftar

  4. Ægir says:

    Kannski ferðu bara af hafa gaman af bylgjunni næst ég held þú sért að vera gamall.

  5. Óli Bj. says:

    Þó ég hafi nú tekið rugluna með Guðrúnu Gunnars þá held ég að það komi nú ekki til að ég missi vitið og fari að hlusta á Bylgjuna.

  6. ultimate Paris Hilton sex tape download resource hut

    Recently leaked footage of the new Paris Hilton sex tape

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.