Aldur

Ég sofnaði kl. rúmlega tíu í gærkvöldi yfir Elton John tónleikum á Skjá einum. Og það var laugardagskvöld. Svo var ég vaknaður klukkan 07:36 í morgun. Á sunnudegi.

En þetta er ekkert einsdæmi hjá mér. Svona er þetta búið að vera lengi. Ég er hættur að geta horft á bíómyndir á kvöldin þar sem ég sofna alltaf, ég náði reyndar að klára 300 um daginn. Hún var fín. Þó ekki mikið meira en það.

Inga segir að ég sé alveg ómögulegur. Segir meira að segja stundum að ég sé ræfill að geta ekki haldið mér vakandi yfir sjónvarpinu. Sem er náttúrulega satt. En mér finnst alger óþarfi að vera að ausa yfir mann svívirðingum vegna þess arna. Fyrir nokkrum árum hefði ég verið hundfúll yfir því að geta ekki haldið mér vakandi á kvöldin. En núna finnst mér það fínt. Mér finnst það eiginlega bara frábært að sofna snemma og vakna snemma.

Jakó og Doddi komu í heimsókn í gær með Maríu og Sigga með sér. María gafi Hilmi Degi bangsa og Doddi gaf mér þessa fínu Umbro boli sem þakklætisvott fyrir að hafa pantað fyrir sig Rapsodyapparat. 5 mínútum eftir að þau voru farin meig Hilmir á nýja bolinn minn og ældi á bangsann sinn. Afskaplega þakklátur og vel upp alinn ungur drengur.

Hilmir Dagur

6 Responses to Aldur

  1. varð bara að nefna það. je´sus minn góður hvað þetta er endalaus fallegt barn sem þið hjónakornin eigið.
    …..sko ég get líka alveg sagt fallega hluti um fólk hehe.
    kveðja úr keflavíkinni

  2. Ingþór says:

    Rapsodyapparat rokkar feitt !

  3. já þú ert sem sagt búinn að kenna hilmi degi að þakka fyrir sig ;) hehe…
    hann er endalaust sætur þetta barn.. veit eiginlega ekki hvaðan hann hefur það ;) hehehe..

  4. Óli Bj. says:

    Mér finnst eins og ég hafi heyrt þetta áður….

  5. Íris Hákonardóttir says:

    Hann er eins og snýttur útúr nefinu á þér drengurinn:)

  6. Óli Bj. says:

    Þetta þykir mér gaman að heyra…

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.