
Sko, nú er þessi Færeyingainnrás í fullum gangi hér á Íslandi; Eivör Páls, Teitur, Högni Lisberg, Jógvan Hansen, Brandur Enni og hvað þetta heitir nú allt. Mér finnst reyndar flestir þessir færeyingar mjög fínir. Eivör er mögnuð, Teitur er einn af hressari lagasmiðum síðustu ára en að þessi Jógvan skyldi vinna X-Factor segir sennilega nokkuð mikið um hversu lélegir keppendurnir voru. Hann var svona meðal skólaballasöngvari. Ekki slæmur en alls ekki góður.
En það er nú ekki málið. Heldur er málið hvað þetta fólk nú heitir allt saman.
Eivör var kölluð Eivör fyrsta árið hér á Íslandi en síðar kom uppúr krafsinu að nafnið var borið fram Ævör. Og síðan er hún kölluð það.
Sama á við um Teit. Hann var kallaður Teitur á Rás2 í heilt ár eða þangað til hann kom í beina útsendingu fyrir viku síðan ásamt Eivöru. Þá kom það í ljós að hún kallaði hann Tæt. Tætur skyldi hann heita enda er það rökrétt þar sem það er “ei” í nafninu.
Síðan er það Jógvan. Hann var kallaður Jógvan framan af í X-Factor en að sjálfsögðu kom upp úr krafsinu að ó-ið var borið fram “e”. Jegvan. Af hverju var hann ekki bara skýrður Jegvan?! Tætur og Ævör!
En mergurinn málsins er þessi. Mér finnst að þar sem við Íslendingar tökum svona vel á móti þessu fólki að þá eigi það að vera kallað Eivör, Teitur og Jógvan þegar þau eru á Íslandi. Íslenskan framburð. Ekkert færeyingarugl. Þau geta notað sín Æ og E þegar þau eru í útttlandinu. Þegar Magni var í Ameríku var hann kallaður Megní. Þó að kaninn hefði alveg getað sagt Magni. En þeim fannst þægilegra að segja Megní og því var það notað.
Og haldiði síðan kjafti!
Þar sem ég finn ekki e-mailið þitt á þessari heimasíðu óska ég hér með eftir að fá sent boðskort á áður ummrædda heimasíðu.
Kv. hr.Ingþór
E.S.
Færeyingar snarféllu í áliti hjá mér á síðasta ári.
1. strangtrúaðir og leifðu ekki sýningar á Da Vinci lyklinum .
2. hommafóbía á mjög háu stigi. (sýnir heimsku og þröngsýni)
3. Allt og fáir færeyingar erum með stolt færeyskra karlmanna, hormottu.
Hvernig ætli Eivör líti út með hormottu ?
http://www.ingthor.com/index.php?/archives/92-unknown.html
Ekki veit ég hvað varð af stolta færeyingnum mínum, en hér er myndin aftur. http://www.ingthor.com/uploads/eivor.JPG
haha hún er flott svona. En ég er samt farinn að halda að þú sért eini maðurinn sem skoðar síðuna mína miðað við kommentin….
Færeyingar eru flottir…. (°°,)
NeiNei Óli minn..!! ég er fasstagestur hérna.. finnst agalega gott að kíkja á Séra Ólaf eftir góða máltíð og hugleiða með þér hérna á veraldarvefnum með ísblóm að vopni..!! og haltu siðan kjafti!
Það er aldeilis að það er uppi typpið á gítarfíbblinu! Haha… ísblóm eru góð. Bara hræddur um að það sé það eina sem þú borðar þessa dagana.
Prescriptions…
hey just stopped by, great stuff…