Finale

miðvikudagur, 23 maí, 2007

Tími til kominn að gera grein fyrir stöðu og líðan.

Ég er hress.
Við erum semsagt nýbúin að ganga frá kaupum á nýju húsi, nánar tiltekið Borgarlandi 34. Kannski betur þekkt sem Snjólfshús. Heitir reyndar Espilundur sem mér finnst nú frekar samkynhneigt en það er víst ekkert hlaupið að því að breyta nöfnum á húsum. Ef allt væri rétt héti þetta hús Ólafsstaðir eða Ólafslundur.
Þetta er hið fínasta hús með baði, vaski og sólpalli.
Inga er byrjuð að reyta garðinn upp. Hefur í hyggju að gera hann allan hinn glæsilegastan. Ég skal alveg viðurkenna það að allt sem við kemur svona görðum er ekki mín sterkasta hlið. Ætli maður verði nú samt ekki að sýna einhvern lit og stinga upp eina tuttugu metra svo frúin geti komið fyrir aragrúa af trjám. Sé til hvort ég sé maður í það á morgun.

En ég hef ákveðið að láta undan og gerast aftur bloggvændiskona. Það er að segja að skipta aftur um blogg.
olafurbj.blog.is verður það í þetta skiptið og nú lofa ég að láta það gott heita. Þangað til annað lemur í kjós.

Að handan og framundan eru gríðarlegar æfingar fyrir hammondhátíð mikla sem haldin verður hér á Djúpavogi dagana 31. maí til 3. júní. Við stórmennin í hljómsveitinni Dallas ásamt skemmtaraleikaranum Svavari Sigurðssyni spilum á fyrsta kvöldi og ætlum að gera alla heyrnarlausa með léttleikandi lögum úr smiðju Pink Floyd, Deep Purple og Uriah Heep. Lofa rokki og gleði.
Föstudags og laugardagskvöldin eru svo þéttskipuð hverju stórnafninu á fætur öðru.
Blúsbrot Garðars Harðars og Mæðusveitin Sigurbjörn spila á föstudagskvöldinu og svo mun Landsliðið sjá um uppistand á stórtónleikum í Íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Ber þar helst að nefna Jón Ólafsson, Andreu Gylfa, Dóra Braga, Ásgeir Óskars og Eðvald Lárusson. Það verður ekkert leiðinlegt. Nánar um það á http://www.djupivogur.is/hammond/

Jæja, þá þakkar þessi vefur fyrir sig í bili og lifi nýja síðan.
olafurbj.blog.is

Bæs


xhvad.bifrost.is

þriðjudagur, 8 maí, 2007

Ég tók semsagt prófið sem allir eru að tala um og má segja að ég hafi staðist það með miklum sóma.

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 50%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 80%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 31.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 19%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

 

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Framsóknarflokksins!

Og þar hafiði það


Hugleiðingar

föstudagur, 4 maí, 2007

Ég er mikið að spá í þessum bloggkerfum. WordPress er mjög fínt, aðgengilegt og meðfærilegt á flesta vegu. En ég er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af blog.is kerfi Mbl.is. Enginn maður með mönnum nema hann bloggi þar. Eins jókst hrfining mín á því kerfi í gær þegar ég komst að því að það er frítt en ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að það kosti að vera með aðgang. Enda lætur Mbl.is borga fyrir allt. En svo er nú ekki með kerfið.

Því eru vangavelturnar miklar hvort ég eigi (eftir að hafa skipt nýlega úr 6 ára gömlu bloggi yfir í nýtt) að gerast svona “blogggleðikona” og skipta aftur um kerfi. Svoldið leim en gæti haft ýmsa kost í för með sér.
Eina sem ég sé athugavert við blog.is er það að það eru það margir notendur að kerfið virðist illa ráða við allan þennan fjölda og síður virðast dáldið seinar að hlaðast inn en það er vonandi verið að vinna í því.
Það heillar mig mjög við blog.is að þú getur bloggað beint um fréttir sem þú lest á mbl.is sem kemur sér vel fyrir svona frétta- og pólitíkurnörd eins og mig. Svo vekja þessi blogg einfaldlega meiri athygli en önnur og er það einnig jákvætt þar sem ég reyni sem minnst að skrifa um hvað ég fékk mér í hádegismat eins og flestir bloggarar hafa sem aðalmál.

Ég er nú samt ekki búinn að gera upp hug minn enda með valkvíða á háu stigi og illa við að breyta til.  En ég mæli með að bloggnördar sem hafa gaman að því að skoða eitthvað annað en hvað frændfólk þeirra fékk sér marga bjóra í gær kíki á www.blog.is


Eitt og annað

Sunnudagur, 29 apríl, 2007

 - Klukkan er 02:52

- Ef þið viljið sjá Jónínu Bjartmarz taka Helga Seljan, Reyðfirðinginn knáa og gjörsamlega pakka honum saman og láta hann líta út eins og skólastrák þá mæli og með því að þið smellið á linkinn hér fyrir neðan, spólið yfir Ómar Ragnarsson og njótið.

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301790

- Oft er talað um að trommuleikarar slái takt við hin ýmsu tækifæri, samanber þegar ég stóð við hliðina á Danna trommuleikaranum í Maus í Ísbúðinni í Vesturbæ og hann fór að tromma í takt við ísvélina. En ég hef tekið eftir því að þegar ég borða kex þá tygg ég það alltaf í einhverjum takti. Mæli með að þið prófið það.

- Eftir því sem ég best veit þá er Björgólfur Thor að borga 1.1 milljón á mánuði í hússjóð í nýju fínu íbúðinni sinni í New York. Það er ekki neitt.

- Liverpool tapaði í dag. Sem er gott.

- Það er þess virði að athuga Skype gaumgæfilega. Sniðugt forrit

- Ég hef aldrei dregið dul á það að mér er illa við Guðrúnu Gunnarsdóttur. Hef farið illum orðum um hana og aldrei dregið neitt af. Hér með dreg ég það allt til baka. Hún er fín.

- Þar sem þið eruð ábyggilega ennþá að skoða Kastljósklippuna sem ég vísaði á fyrr í blogginu þá eruð þið sjálfsagt löngu búin að gleyma því að þið voruð að lesa þetta blogg. Því segi ég þetta gott í bili.

Stóðar gundir


Aldur

Sunnudagur, 22 apríl, 2007

Ég sofnaði kl. rúmlega tíu í gærkvöldi yfir Elton John tónleikum á Skjá einum. Og það var laugardagskvöld. Svo var ég vaknaður klukkan 07:36 í morgun. Á sunnudegi.

En þetta er ekkert einsdæmi hjá mér. Svona er þetta búið að vera lengi. Ég er hættur að geta horft á bíómyndir á kvöldin þar sem ég sofna alltaf, ég náði reyndar að klára 300 um daginn. Hún var fín. Þó ekki mikið meira en það.

Inga segir að ég sé alveg ómögulegur. Segir meira að segja stundum að ég sé ræfill að geta ekki haldið mér vakandi yfir sjónvarpinu. Sem er náttúrulega satt. En mér finnst alger óþarfi að vera að ausa yfir mann svívirðingum vegna þess arna. Fyrir nokkrum árum hefði ég verið hundfúll yfir því að geta ekki haldið mér vakandi á kvöldin. En núna finnst mér það fínt. Mér finnst það eiginlega bara frábært að sofna snemma og vakna snemma.

Jakó og Doddi komu í heimsókn í gær með Maríu og Sigga með sér. María gafi Hilmi Degi bangsa og Doddi gaf mér þessa fínu Umbro boli sem þakklætisvott fyrir að hafa pantað fyrir sig Rapsodyapparat. 5 mínútum eftir að þau voru farin meig Hilmir á nýja bolinn minn og ældi á bangsann sinn. Afskaplega þakklátur og vel upp alinn ungur drengur.

Hilmir Dagur


Það…

laugardagur, 21 apríl, 2007

… er nú alltí lagi að ég skrifi kannski hérna inn af og til.

Vil bara koma á framförum viðbjóði mínum á karlmönnum sem telja sig vera gagnkynhneigða en nota samt gloss og líta út alveg eins og kvenmenn… hvern andskotann á það að þýða? Þessir menn halda sig þó sem betur fer aðallega á Reykjavíkursvæðinu en bregður alltof oft fyrir í sjónvarpi. Þá finnst mér alveg sjálfsagt fyrir saklausan sveitamanninn að andlitið á þeim sé blörrað.

Svo eru þetta kallaðir hinir sönnu karlmenn. Alveg eins og kellingar að geta ekki farið út úr húsi nema vera búnir að mála sig, taka hálftíma í hárið og klæða sig eins og götumellur í París. Er það karlmennska að sulla einhverju glansandi gumsi á varirnar á sér? Fari þessir grútarbellir í grábölvað. Og megi Jermaine Jenas fara sömu leið.



Föroyingar

Sunnudagur, 8 apríl, 2007


Sko, nú er þessi Færeyingainnrás í fullum gangi hér á Íslandi; Eivör Páls, Teitur, Högni Lisberg, Jógvan Hansen, Brandur Enni og hvað þetta heitir nú allt. Mér finnst reyndar flestir þessir færeyingar mjög fínir. Eivör er mögnuð, Teitur er einn af hressari lagasmiðum síðustu ára en að þessi Jógvan skyldi vinna X-Factor segir sennilega nokkuð mikið um hversu lélegir keppendurnir voru. Hann var svona meðal skólaballasöngvari. Ekki slæmur en alls ekki góður.

En það er nú ekki málið. Heldur er málið hvað þetta fólk nú heitir allt saman.
Eivör var kölluð Eivör fyrsta árið hér á Íslandi en síðar kom uppúr krafsinu að nafnið var borið fram Ævör. Og síðan er hún kölluð það.
Sama á við um Teit. Hann var kallaður Teitur á Rás2 í heilt ár eða þangað til hann kom í beina útsendingu fyrir viku síðan ásamt Eivöru. Þá kom það í ljós að hún kallaði hann Tæt. Tætur skyldi hann heita enda er það rökrétt þar sem það er “ei” í nafninu.
Síðan er það Jógvan. Hann var kallaður Jógvan framan af í X-Factor en að sjálfsögðu kom upp úr krafsinu að ó-ið var borið fram “e”. Jegvan. Af hverju var hann ekki bara skýrður Jegvan?! Tætur og Ævör!

En mergurinn málsins er þessi. Mér finnst að þar sem við Íslendingar tökum svona vel á móti þessu fólki að þá eigi það að vera kallað Eivör, Teitur og Jógvan þegar þau eru á Íslandi. Íslenskan framburð. Ekkert færeyingarugl. Þau geta notað sín Æ og E þegar þau eru í útttlandinu. Þegar Magni var í Ameríku var hann kallaður Megní. Þó að kaninn hefði alveg getað sagt Magni. En þeim fannst þægilegra að segja Megní og því var það notað.

Og haldiði síðan kjafti!


Óþolinmæði

föstudagur, 6 apríl, 2007

Ég er sérstaklega mikill aðdáandi Lost og Prison break. Ég bíð spenntur eftir hverjum einasta þætti og ligg skjálfandi á beinunum af spenningi þegar hverjum þætti líkur.

Nú er önnur sería af Prison break búin og þriðja sería af Lost í fullum gangi og það er nokkuð ljóst að það eru ansi margir sem hafa gefist upp á að fylgjast með þáttunum og telja þetta örgustu tímasóun og langavitleysu. Það getur enginn beðið með að sjá hvernig þáttaraðirnar koma til með að enda. Það urðu allir snarvitlausir þegar fréttist að önnur sería af Prison break kæmi og hvað þá þegar önnur sería af Lost væri í bíðgerð og morð voru framin þegar fréttist af þriðju seríu. Nú er það komið á hreint að þriðja sería af Prison break er væntanleg og menn henda sér í gólfið í frekjukasti vegna þess að nú þurfa þeir að bíða í minnst rúmlega 20 þætti til að sjá hvernig þetta endar allt saman hjá bræðrunum.

Ég persónulega vona að það verði gerðar 10 seríur í viðbót af Prison break og að Lost verði enn í fullum gangi þegar ég verð kominn á elliheimili. Ég er greinilega einn af mjög fáum sem er ekki spenntur að vita hvernig þetta endar allt saman. Ég hef bara gaman af þáttunum og finnst þeir báðir standa undir því að nokkrar seríur verði gerðar í viðbót. Mér finnst gaman að vera spenntur yfir einhverju, það er nú ekki svo margt í sjónvarpsþáttagerð sem gerir mann spenntan nú til dags.

En það er bara svo einfalt að íslendingar eru að verða svo óþolinmóðir að það þarf allt að gerast í gær. Og það á við um allt. Alveg sama hvað það er, það má ekkert bíða. Ég held að það útskýri voðalega mikið ástæðu þess að Lost og Prison break hafa misst áhorf á Íslandi. Það er ekki vegna þess að þeir eru lélegir eða haldi manni ekki spenntum. Það gerist bara ekki allt strax í þeim.

Við erum alltaf að bíða eftir einhverju, getum ekki einbeitt okkur að því sem er í gangi hverju sinni.
Svo eru menn undrandi á að tíminn líði hratt á gervihnattaöld.

Þessi hugvekja var í boði Ólafs Björnssonar.


Verkfæri

fimmtudagur, 5 apríl, 2007

Já, hann karl faðir minn hefur óendanlega gaman af því að gefa mér hluti. Eitthvað sem nýtist mér.
Mér finnst fátt eins gaman eins og fá eitthvað sem ég get notað. Eitthvað sem er í senn eigulegt og nýtist vel.
Eins og verkfæri.
Pabbi gaf mér fyrir nokkrum árum verkfæratösku sem inniheldur þessi helstu verkfæri sem maður þarf að nota. Og það er ekkert lítið sem þessi taska er búinn að nýtast mér og mínum. Hún kom sér allavega vel þegar við Steini vorum sælla minninga að skipta um spyrnu í Dæjaranum. Annars gerði Steini lítið annað en að horfa á og rétta mér verkfæri.
Einnig gaf pabbi mér svona stand sem inniheldur lítið rafmagnsskrjúfjárn auk fjölda skrúfbita, hallarmál og málband og einnig fylgdi með forláta blýantur sem reyndar hefur ekki verið notaður enn. En þið megið reyna að ýminda ykkur hversu mikið og vel þetta hefur nýst mér.
Svo núna síðast gaf hann mér tangartösku. Tösku með fullt af mismunandi töngum til hinna og þessara verkefna. Reyndar hef ég bara notað eina af þessum töngum og það bara einu sinni og það var til að klippa af óþarfa enda sem kunna að myndast þegar strengir hafa verið settir í gítar. En það breytir því ekki að tangirnar eiga eftir að nýtast mér einhverntíma.

Ég hef nú sjaldnast verið talinn mjög laginn og ætla ekkert að fara að neita því en ég segi samt sem áður eins og maðurinn sagði:
Maður getur gert ýmislegt ef maður hefur verkfærin.”
(prik fyrir þá sem vita hver mælti svo)


Af Ómarstrú

mánudagur, 26 mars, 2007

Ég er þess viss að innan skamms eigi Ómar Ragnarsson eftir að standa uppi á Arnarhóli og predika yfir íslensku þjóðinni um mikilvægi þess að bíta gras og drekka kaffi. Hólræðunnar á eftir að verða minnst eftir hundruðir og jafnvel þúsundir ára og Ómarstrúarmenn munu vera í meirihluta mannkyns og þylja upp Andrasnæsguðspjall og Kobbafrímannsguðspjall.

Það er án gríns sem ég sé þetta svona fyrir mér. Og það er sjálfsagt akkúrat svona sem Ómar Ragnarsson sér framtíðina fyrir sér. Enda hagar hann sér þannig. Það er engu líkara en hann telji sig Jesús endurfæddan því predikanir og múgæsingur virðist vera það sem hann stendur fyrir.
Mér finnst þetta vera sorglegt hvernig komið er fyrir karlinum. Þessi fyrrum skemmtikraftur þjóðarinnar þrammar nú um stræti og torg boðandi fagnaðarerindið. Svona fer sennilega áratugastarf af hlutlausum fréttaflutningi með fólk, þ.e. fólki sem hefur sterkar skoðanir. Hann flutti frétt eftir frétt um eitthvað sem stóð hjarta hans næst en hann mátti aldrei hafa skoðun á fréttaefninu opinberlega. Undir það síðasta vissu allir að Ómar var á móti virkjunum og nýtingu landsins. Enda var það þá sem hann var við það að springa. Og svo sprakk hann og það var nú verra.

Máttur fræga fólksins er og hefur alltaf verið gríðarlegur. Viss hluti af almúganum telur að það sem frægt fólk segir hljóti bara að vera sannleikur. Tónlistarmenn, leikarar og skemmtikraftar hljóta að vera þetta lífsreynda fólk sem man tímana tvenna, hetjur þessa lands sem vita hvað til þarf til þess að allt verði gott og blessað. Jebb. Ekki einhverjir sjómenn, landverkafólk, bændur, búalið og yfir höfuð fólk sem þarf af og til að dýfa hendi í kalt vatn og leysa ekki vandamál með kaffi og sígó. Neibb. Það er öllum skítsama hvað Siggi á Sæfaxa eða Jón í Neðrakoti hafa að segja. Þeir vita ekkert.
En Hallgrímur Helgason og Andri Snær Magnason, þessar lífsreyndu vinnuhetjur, þeir eru nú karlar í krapinu og hafa þetta allt á hreinu.

Ómar er frægur. Þess vegna halda margir að hann viti allt. Og svo hlýtur allt að vera fullkomnað þegar Jakob Frímann mætir í köflóttum jakkafötum á fund. Hann veit allt, hann hefur meira að segja spilað í Valaskjálf! Lífsreyndur kappinn sá.

En hvað er annars að frétta af Örkinni?


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.